Nemendur heimsækja Borgarleikhúsið

Hópur Flensborgara í leikhúsáfanga heimsótti Borgarleikhúsið á dögunum.  Halla Björg Randversdóttir, fræðslustjóri, leiddi hópinn um ranghala leikhússins og sýndi nemendum m.a. leikmunadeild, hárkollugerð og leikmyndaverkstæði. Leikhús er miklu meira en það sem sést á sviðinu, baksviðs er heill heimur sem nemendum fannst áhugavert að kynnast.