Próftafla birt og valvika framundan

Á mánudaginn opnar fyrir val nemenda við Flensborgarskólann á INNU. Nemendur hafa alla næstu viku til að ganga frá valinu og hafa fengið leiðbeiningar í tölvupósti frá áfangastjóra. Leiðbeiningarnar er hægt að nálgast hér. Nemendur á fyrsta ári þurfa ekki að velja.

Áminningar um valið verða áberandi í næstu viku en mikilvægt er að hafa það í huga að val staðfestir skólavist nemenda á næstu önn.

Próftafla haustsins hefur verið birt á heimasíðu skólans en prófin standa yfir frá 6. - 14. desember og nemendur eru hvattir til að kynna sér prófreglur skólans hér.