Próftafla vorannar og skráning í sérúrræði

Búið er að birta próftöflu annarinnar á heimasíðu skólans. Nemendur geta sótt um sérúrræði í prófunum, s.s. að vera í fámennri stofu, fá aðstoð talgervils eða taka próf í tölvu. Skilyrði þessa eru greiningar sem fyrir liggja hjá nemenda- og kennsluráðgjafa (Rannveigu Klöru).

Umsóknarfrestur er til 20. apríl. Sótt er um í Innu (skrá sérúrræði – neðarlega í hægri valmynd).