Skráning forfalla og sóttvarnir

Það er mikilvægt að tilkynna veikindi í INNU og setja nánari upplýsingar um eðli þeirra í athugasemdir (einangrun eða sóttkví) en einnig ber að senda tölvupóst á skrifstofa@flensborg.is með vottorði úr Heilsuveru.

Einnig minnum við á persónubundnar sóttvarnir, þvo og spritta hendur og sótthreinsa nálægustu fleti.

Meðan núverandi samkomutakmarkanir eru í gildi verður ekki boðið upp á heitan mat í hádeginu í mötuneyti skólans en hægt verður að kaupa léttan mat (salatbox, rúnstykki, búst,ávexti). Athugið vel að ekki mega vera fleiri en 50 í rými og bið ég hér með nemendur um að vera sér meðvitaðir um þetta og hjálpa okkur að halda reglum.

Ef þið lendið í sóttkví eða einangrun er gott að hafa eftirfarandi í huga:

  1. Tilkynna í Innu og til skólans (senda vottorð úr Heilsuveru á skrifstofu)
  2.  Fylgjast vel með náminu í Innu. Gott er að fara vel yfir námsáætlun áfangans, fylgjast með tilkynningum og vinna samkvæmt fyrirmælum sem koma fram í heimanámi
  3. Vera í samskiptum við kennara, ef þarf
  4. Hafa samband við skólann, t.d. námsráðgjafa ef þið lendið í vafa með eitthvað sem snýr að náminu, sjá nánari upplýsingar hér.

 

Ef einhverjar frekari spurningar vakna, t.d. varðandi nýjar reglur um sóttkví, þá er ykkur velkomið af hafa samband.

Gangi ykkur öllum vel – áfram þið!

 

Hér má sjá bréf sem skólameistari sendi í morgun til nemenda og forráðamanna