Söngkeppni NFF

Vel tókst til á söngkeppni NFF á dögunum. Stefán Torrini hlaut verðlaun fyrir frumlegasta lagið en hann söng og lék á gítar eigið lag. Unnur Elín Sigursteinsdóttir sigraði keppnina og fer því sem fulltrúi Flensborgarskólans á söngkeppni framhaldsskólanna í Kaplakrika þann 1. apríl næstkomandi.